|
|
12.05.2006 17:40:02 / Hrund
Ný færsla á
http://www.kvennopian.bloggar.is
ég er alveg farin þangað í bili
smútch
-Hrund
»
07.05.2006 22:11:49 / Hrund
Ég er komin með nýja síðu.. allavega tímabundið.. ætla að prófa
það og færi mig bara alveg ef mér finnst það betra
sjáumst þar
http://www.kvennopian.bloggar.is
k.kveðja HrundEr
»
21.04.2006 01:22:20 / Hrund
»
08.04.2006 01:25:41 / Hrund
»
31.03.2006 01:14:36 / Hrund
þöngulhaus... ég segi það aftur þöngulhaus...
alltaf eru sjálfstæðismenn jafn *argasta* óþolandi...
sá einhver Kastljósið í kvöld???... í
fyrsta skipti fann ég mig innilega sammála
Samfylkingarkonu... Einar Oddur hafði sama og ekkert til síns
máls að taka.. hann bara.. (!!ohh!! leiðinda pirrandi
náungi.. )var bara "hverjir ekki?? hverjir ekki?? segðu
mér - hverjir ekki??" allan tímann.. að svona fólk skuli
stjórna landinu.... og ekki er þetta fyrsta dæmið um
sjálftstæðismann sem hugsar varla heila hugsun.. t.d.
menntamálaráðherra.. (menntamálaráðfrú).. allir upp til hópa
á einhverju gífurlegu egó- valdatrippi... og sjá ekki
bjálkann í sínu eigin auga...
daaahh!!
»
28.03.2006 00:11:27 / Hrund
ok, þá hefst annríki mikið í skólanum.. og næst á dagskrá er
íslenskuritgerð, munnlegt enskupróf, enskuritgerð, munnlegt
dönskupróf og kjörbókarpróf í dönsku... og så videre og så
videre...
Málið er bara að ég er í smá vandræðum.. umskrifuefnið í
enskuritgerðinni er
'The person I admire the most' (Hefði
verið mun auðveldara hefði hún sett f. 'The person I dislike the
most' hehe)
Málið er bara að ég á enga sérstaka manneskju sem ég lít mest upp
til.. þeir sem ég lít upp til eru þeir einstaklingar sem eru mér
eldri og vitrari.. En fólkið verður að láta sem það sé mér eldra og
vitrara.. sumir fullorðnir haga sér bara eins og þeir séu ekki
deginum eldri en ég..
Þannig að.. einhverjar hugmyndir??
Hver gæti verið 'The person I admire the most'?????
»
23.03.2006 22:33:51 / Hrund
»
21.03.2006 22:56:47 / Hrund
»
02.03.2006 23:05:04 / Hrund
mér þykir ekki gaman að liggja undir feldi að hugsa..
finna hina innri mig.. jii hvað ég er andleg!
Jæja í aðra sálma!
í dag er 2. mars sem þýðir að í dag eiga UPPÁHALDS tvíburasysturnar
mínar afmæli!
Ég man þennan dag fyrir 25 árum síðan, það var komið að því að
mamma skildi fara að eiga, og ekki bara eina systir handa mér
heldur tvær.. þvílíkt tilboð two for one! það var ánægð systir sem
kítki á litlu gullmolana á fæðingardeildinni.. svo eignaðist
vinkona mömmu strák ekki svo löngu seinna. ég kíkti í vögguna og
spurði svo "hvar er hitt barnið" þótti ekki mikið tiltökumál að
hafa eignast tvær systur í einu.. litlu yndigullin...
Nei annars.. úps það var ekki ég, það var víst Íris systir.. ég
kom ekki til sögunnar fyrr en 8 árum seinna..
vand-ræða-legt........
eníveis...
ELSKU EYGLÓ OG ARNA SÆTU SYSTUR MÍNAR TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
RÚSLUR! love you guys endalaust!!
og + þið hin sem eigið líka afmæli... Sólborg, Kristín, Elmar Elí
og að ógleymdri Ínu í IDOL! til hamingju allir!!
gaman gaman gaman

Gleðifréttir aldarinnar.. ég er hætt að dreyma sama drauminn 24
nætur eru nóg
hehe og eitt.. eins og ég sagði síðast er ég alveg óendanlega
frökk, hugrökk, þorin, yndisleg og frábær í alla staði (og
gríðarlega hógvær) þá talaði ég við Erlu Elínu.. og viti menn, hún
beit mig ekki, urraði sama og ekki neitt og öskraði ekki á
mig!!
Frábært!
Love love
og til hamingju aftur yndisfríða afmælisfólk
-Avoir
»
27.02.2006 20:46:34 / Hrund
»
19.02.2006 04:27:27 / Hrund
hehe.. nú er ekki hægt að áfellast mig fyrir bloggleysi. Vegna
þess að í hvert skipti sem mér dettur í hug að blogga þá er tölvan
mín upptekin, og það vegna þess að foreldrar mínir eru að nota
hana. Þau eru nefnilega orðin gagntekin af LOST.
Þau fylgdust ekki með 1. seríu, en ákváðu allt í einu að þetta væri
rosa spennandi og eru núna búin að horfa á svona 2-5 þætti á hverju
kvöldi, lengi!
En núna fékk ég tækifæri til að góma tölvuna, því þau eru sofnuð
sætu sætu..
Ég er að lesa eiginlega það leiðinlegasta sem ég hef nokkurn tíman
lesið – skýrslu menntamálaráðuneytisins um styttingu náms til
stúdentsprófs (70+ bls. Þakka þér pent) en eitthvað verður maður nú
að hafa að segja ef maður ætlar e-ð að taka þátt í mótmælunum.. sé
alveg fyrir mér “ og af hverju ert þú eiginlega að mótmæla.” “öhh,
af því bara!! ” hehe, þannig ég ætla að kynna mér þetta. Þó það
mætti halda að konan (Þorgerður Katrín) hugsi ekki heila hugsun.
Ef ég ætti
samræmdaprófsritgerðina mína úr íslenskuprófinu, myndi ég ljósrita
hana og senda henni í pósti.. Sú ritgerð er ein af fáu sem ég er
virkilega stolt af að hafa gert!
Já og jæja….. ég hef svo sem ósköp lítið annað að segja..
nema hvað að ég er alveg ótrúleg. Ég var að keyra í kvöld sem og
svo oft áður, nema hvað að ég þetta skiptið var ég ein, ég ein að
keyra í svona klukkutíma þýðir mikið hux. Það er nefnilega það eina
sem ég er mjög góð í (fyrir utan það að tala þegar þess er ekki
óskað að ég sé að tala). Ég s.s. hugsaði og hugsaði í kvöld, um
bókstaflega ALLT!! allt milli himins og jarðar, ég get svo svarið
það......
Mér hefur að vísu sjaldan verið svo íþyngt með þankagangi að ég
hreinlega kasti upp, en einu sinni er jú allt fyrst, svolítið spes
þó...
- Vitiði, ég held að ég sé
endanlega að ganga af göflum. Mig dreymir sama drauminn, án afláts,
hverja einustu nótt.. aftur og aftur og aftur og aftur og aftur
o.s.frv....
alveg FURÐULEGT..
og by the way, ég er ekki tjónlaus lengur, uhuhuu 
ég bakkaði á bíl í gær... og vááá hvað mér brá, ég hélt að hjartað
ætlaði að hoppa niður í buxur, sjitt...
en jæja, ætla að gera e-ð af viti, því fyrir ykkur sem þekkið mig
þá er ekki enn kominn háttatími, því ég er eiginlega þekkt f. að
sofa lítið á nóttunni, eða allavega á virkum dögum, því ég sofna
iðulega ekki fyrr en svona hálf fimm - fimm..
Enda vill lífsleiknikennarinn minn að ég fari til geðlæknis... ég
fer ef hún fer
nei nei... hehe
þar til næst...
»
11.02.2006 03:32:18 / Hrund
sökum smá svefnleysis ákvað ég að setja inn örstutta færslu
klukkan er rúmlega 3 á föstudagskvöldi og ég er s.s. komin
heim!
ástæðan er nokkuð einföld.
Ég er að fara að æfa mína annars undurfögru rödd kl. 9 í
fyrramálið!.. skemmtilegt það?? öhh nei  ég er nefnilega ALGJÖR
b-týpa.. fer seint að sofa og vakna seint..
En Margrét nokkur Pálmadóttir er nefnilega eitt stykki óhemjuhress
kvenmaður og öfugt við mig alveg upp á sitt besta á morgnana! og
það er vitað mál að auðvitað ræður yfirvaldið og æfingarnar eru
klukkan 9 - útrætt mál!
jæja þetta stefnir í óásættanlega tilgangslausa bloggfærslu svo ég
ætla bara að slútta þessu áður en ég fer að segja eitthvað sem ég
sé eftir.. nei nei
ætla aðeins að hvíla raddböndin áður en kerlingarnar öhmm konurnar
afsakið.. (fyndið hvað konur taka því alltaf nærri sér ef maður
segir kerlingingar.. *höhh - !?!?!?!?!KERLINGAR!?!?!?!?!  þær ekki
nema rétt rúmlega fertugar/fimmtugar... algjörar skvísípæjur ...
ahhahaha* ) jæja áður en þær, skulum við bara segja, fá að njóta
þeirra í fyrramálið
pís át
»
05.02.2006 22:45:05 / Hrund
Takk fyrir kveðjuna á blogginu hennar mömmu Guðrún.. þ.e.a.s. ef þú
lest þetta hehe  Sá Kristínu í gær í Smáralind.. fyndið það
en jæja..
ég er orðin gömul.. ég kom heim á undan mömmu og pabba sl.
föstudagskvöld hehe..
Margt og mis skemmtilegt hefur drifið á daga mína undanfarið.
Kaupsýkin algjörlega gengin yfir, enda ekkert afspyrnu magn af
peningum eftir í pyngjunni, en þetta var gaman
Ég var alveg komin í blogg-gírinn áðan, alveg búin að ákveða
hvað ég ætlaði að skrifa, en nei.. ég get ekki með nokkru móti
munað hvað var svona merkilegt sem ég ætlaði að segja..
allavega..
Hvað er málið með mig og drauma????  mig dreymdi ekki fyrir svo
löngu síðan, sama drauminn margar, margar nætur í röð, og svo
dreymdi mig það sama aftur í nótt.. ég ætti kannski að leita til
geðlæknis eftir allt saman.. Því hún Raggý okkar elskulega vildi
endilega fá mig til eins.
___
Ég var að pæla í að skipta um 3. tungumál.. fá að fara í frönsku í
staðinn fyrir þýsku.. þar til mér var tjáð að ég þyrfti að ræða það
við Erlu Elínu aðstoðarskólameistara.. það er nú hægara sagt en
gert, því blessuð konan þolir ekki 1. bekkinga.. gúlp  hvað gera
bændur þá.. á maður að hanga í 3 ár í þýsku, eða bíta á jaxlinn og
horfast í augu við "vandann"... Stay strong  (ég skil hana
reyndar ekki, eins og við erum alveg yndisleg  )
jæja.. ég er algjörlega komin út fyrir efnisskránna..
Hrund hunangsbangsi - jejeje
»
31.01.2006 23:41:26 / Hrund
..... ég er mjööög illa haldin af
*nenni-engan-veginn-að-læra-fyrir-söguprófið-á-morgun-langar-bara-að-leggjast-upp-í-rúm-og-klára-að-lesa-í-Én,to,tre;NU-eða-klára-Ótuktina-eftir-Önnu-Pálínu*
veiki!
alveg svakalegt...
Ég er semsagt alveg fársjúk! Ég gæti verið búin að lesa heilan
helling, en Thean mín einasta eina kom á msn rétt í þann mund er ég
var að fara að skrá mig út og vitaskuld tímdi ég þá ekki að fara,
og við töluðum heillengi saman, alltaf gaman að heyra í henni
stúlkunni!
En það er ein/einn/eitt sem pirrar mig mjög mikið en
það skal ekki tíundað hér, því einn pirraður gerir annan
pirraðan og þeir gera tvo aðra pirraða og þeir fjórir saman gera
aðra fjóra pirraða og svo koll af kolli, svo ég ætla bara að sleppa
því hér
Ég er ekki bara með króníska tungumálafeimni og
*nenni-engan-veginn-að-læra-fyrir-söguprófið-á-morgun-langar-bara-að-leggjast-upp-í-rúm-og-klára-að-lesa-í-Én,to,tre;NU-eða-klára-Ótuktina-eftir-Önnu-Pálínu*
veiki! heldur er ég líka með kaupsýki...
eftir að ég fór að versla mér föt sl. sunnudag, þá hef ég vart
hugsað um annað en hvað ég hlakka til að versla meira um helgina
með Eygló systur og Sonju úr vinnunni og svo kannski Hörpu ef til
vill..
að hugsa sér, - ÉG að versla haha, það telst svo gott
sem saga til næsta bæjar get ég sagt ykkur.
En ég ætlaði svo sem bara að borðleggja þá staðreynd að ég er á
lífi, fyrir ykkur sem voruð í vafa um það
Until next
"At rejse - þá ertu búin að pakka niður í koffort og ert á
leiðinni í langferð (kannski búin að pakka doðrantinum með? hver
veit.)" - A.L.
»
25.01.2006 15:06:39 / Hrund
Ég
hef alltaf haft mjög gaman að dönsku... eiginlega
meira gaman en eðlilegt er talið..
Þar til í fyrradag!
Skal vi snakke sammen,
Klar Parat,
Vi ses,
Glimrende,
Superdansk =
allt þetta fyrir ekki
neitt!
Ég meina, ég hef alltaf talið mig tala jú alveg ágætis dönsku.
Kannski enga framúrskarandi, en ég get bjargað mér má eiginlega
segja..
Sú kenning mín fauk út í veður og vind á mánudaginn sl. í
dönskutíma hjá frú Auði Leifs. Hahaha hafi ég einhverntímann haldið
að ég kunni dönsku maður.. ég er nefnilega haldin krónískri
tungumálafeimni. Hvort sem ég á að lesa í ensku hjá Þórey eða
dönsku hjá Auði þá virðast orðin annað hvort ekki gefa sig fram
inni í höfðinu á mér, eða hikstast út í vitlausri röð eða eins og
ég hafi fengið mér kartöflustöppu og ekki tekist að kyngja henni
almennilega... hræðilegt alveg...
Guð má vita hvað hann var að gera þegar hann bjó til dönsku..
kannski er svona ofsalega fyndið að horfa á mig ofanfrá rembast
eins og rjúpa við staur að stama útlenskum orðum út úr mér, sé hann
alveg fyrir mér með popp og kók og skjávarpa að fylgjast með
mér
jæja gott að geta skemmt allavega einhverjum
jæja..
Jeg må godt gå og lave mine lektier....
farvel
»
Síður: 1 2 3 4
|
|